Andri Hrafn Sigurðsson, sálfræðingur

andri(hjá)lifogsal.is

 

Andri Hrafn sinnir bæði einstaklingum og fyrirtækjum í starfi sínu hjá Lífi og sál. Hann notast við sannreyndar aðferðir innan sálfræðinnar, svo sem HAM (hugræna atferlismeðferð) og ACT (acceptance and comittment therapy).

 

Andri Hrafn vinnur með fjölþættan vanda svo sem streitu og kulnun, kvíða, lágt sjálfsmat, samskiptavanda. Einnig leggur hann áherslu á að vinna með íþróttafólki, en Andri Hrafn er sjálfur með bakgrunn úr íþróttum.

 

Andri Hrafn sinnir einnig málefnum tengdum sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum og sinnir vinnustaðagreiningum, eineltismálum og öðru sem lýtur að líðan fólks í starfsumhverfi þess.  Andri Hrafn er með viðurkenningu sem þjónustuaðili í sálfélagslegum áhættuþáttum Vinnueftirlitsins.

 

Andri Hrafn vann hjá Capacent sem ráðgjafi í ráðningum frá 2017-2019, hjá Landspítala sem sálfræðingur á mannauðssviði 2016-2017 og sálfræðingur í starfsþjálfun á sviði fullorðinna frá 2015-2016.  Árin 2014-2015 starfaði hann hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts sem sálfræðingur í starfsþjálfun á sviði barna og unglinga.

 

Andri Hrafn lauk BS gráðu í sálfræði 2013 og Msc í klínískri sálfræði frá sama skóla árið 2016.  Hann hefur einnig lokið áföngum í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Andri Hrafn er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands og Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

 

Andri Hrafn hóf störf hjá Líf og sál í febrúar 2019.