Sigurrós Friðriksdóttir
Sálfræðingur

Sigurrós lauk Cand. Psych. prófi frá Háskóla Íslands árið 2011 og hefur frá þeim tíma gengt störfum sálfræðings, bæði við greiningar og ráðgjöf sem og meðferðarvinnu. Hún hefur víðtæka reynslu af vinnu með börnum og unglingum og hefur starfað með foreldrum í formi stuðnings- og ráðgjafaviðtala. Hún hefur einnig starfað sem sálfræðingur fullorðinna á Heilsugæslunni Heilsuvernd (Heilsugæsla og Vinnuvernd).

Áður en Sigurrós hóf störf hjá Lífi og Sál starfaði hún sem sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi hjá Barnahúsi, þar sem hún veitti börnum og unglingum sem voru þolendur ofbeldis áfallameðferð og foreldrum þeirra stuðningsviðtöl.  Auk þess sinnti hún hlutverki sérhæfðs rannsakanda í Barnahúsi og tók könnunarviðtöl eða skýrslutökur fyrir dómi af börnum sem grunur lék á að hefðu sætt kynferðis- eða líkamlegu ofbeldi.

Sigurrós starfaði einnig um nokkurra ára skeið hjá Barnaþjónustu SÁÁ þar sem hún veitti ráðgjöf og meðferð til barna og ungmenna sem voru nánir aðstandendur fullorðinna með fíknisjúkdóm.

Sigurrós notast við sannreynda meðferðarnálgun í starfi sínu. Má þar nefna hugræna atferlismeðferð (CBT), áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð (TF-CBT), hugræna úrvinnslumeðferð (CPT), núvitund (mindfulness) og EMDR (Eye Movement Desensitization and Reprocessing). Sigurrós hefur m.a. hlotið þjálfun í CF-TSI (Child and Family Traumatic Stress Intervention), TF-CBT (Trauma Focused Cognitive Behavioral Therapy), rannsóknarviðtalstækni (Forensic Interview Training) hjá National Children‘s Advocacy Center og lokið 1. þrepi í EMDR hjá Hope Payson, auk þess að sækja hin ýmsu námskeið og vinnustofur.  Hún hefur einnig lokið M.Sc. gráðu í Corporate Communications við Háskólann í Lugano, Sviss.

sigurros@lifogsal.is