Forvarnir á vinnustöðum
Eitt meginmarkmið Lífs og sálar er að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á Íslandi.
  • Áhættumat
  • Fræðsla
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur
  • Handleiðsla fyrir starfshópa

ASDFGHJ

Margt getur komið upp í starfsumhverfi fólks og er einkar mikilvægt að stjórnendur og starfsfólk séu meðvituð um áhrif og ábyrgð hvers og eins í því að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri menningu á vinnustöðum.

Mikið getur fengist með því að auka vitund og meðvitund starfsfólks auk þess sem mikilvægt er fyrir stjórnendur fyrirtækja og stofanna að fylgjast vel með líðan, heilsu og upplifunum starfsfólks í starfsumhverfinu.

Líf og sál aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að viðhalda og byggja upp jákvæða menningu á vinnustöðum með ýmsu móti.

 

Áhættumat

Vinnustöðum er skylt að framkvæma reglulegt áhættumat á vinnustöðum samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr.46/1980.
Slíkt áhættumat er oft framkvæmt með rafrænni könnun þar sem spurt er út í helstu sálfélagslega áhættuþætti á vinnustöðum. Rafrænar kannanir gefa stórum og meðalstórum fyrirtækjum glögga mynd af upplifunum starfsfólks af starfsumhverfinu, auk þess sem auðvelt er að framkvæma sömu könnun aftur síðar, og þannig meta árangur.

Í sumum tilfellum er farið í dýpri greiningar s.s. með rýnihópum eða einstaklingsviðtölum. Nánari upplýsingar um áhættumat má finna hér.

 

Aðstoð við gerð stefnu og aðgerðaráætlunar í EKKO málum

Þegar upp koma erfið samskipti eða kvartanir um EKKO, er mikilvægt að brugðist sé hratt og rétt við. Þá er ekki síður mikilvægt að starfsfólki sé kunnugt um stefnu og verkferla í EKKO málum til að stuðla að trausti og sálfélagslegu öryggi á vinnustaðnum.

Líf og sál hefur aðstoðar fjölmörg fyrirtæki og stofnanir við gerð stefnu og aðgerðaráætlunar í EKKO málum í samræmi við lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (nr.46/1980) og reglugerð nr.1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

 

Fræðsla

Fræðsla á vinnustöðum er auðveld leið til að stuðla að aukinni meðvitund um ýmislegt mikilvægt sem hafa ber í huga
inn á vinnustöðum s.s. mikilvægi uppbyggilegra samskipta og streitustjórnun. Þá geta fræðsluerindi einnig verið gagnlegt tól á krefjandi tímum s.s. á óvissutímum eða þegar breytingar steðja að. Einnig er mikilvægt að starfsfólk sé vel upplýst um málefni EKKO, viðbrögð og verkferla inn á vinnustöðum.
Algeng efnistök og frekari upplýsingar um fræðsluerindi Líf og sálar má finna hér.

 

Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur

Að bregðast á faglegan hátt við erfiðum samskiptum og öðrum starfsmannamálum skiptir sköpum inni á vinnustöðum.
Líf og sál hefur áratuga reynslu af ráðgjöf við stjórnendur í krefjandi starfsmannamálum. Oft er mikill ávinningur fólgin í því að leita ráðgjafar hjá sérfræðingi áður en haldið er af stað.
Frekari upplýsingar um mannauðsráðgjöf má finna hér. 

 

Handleiðsla fyrir starfshópa

Við ýmsar aðstæður getur verið gagnlegt fyrir starfshópa að fá utanaðkomandi handleiðslu. Má þar nefna vegna álags, krefjandi samskipta við viðskiptavini, breytinga og áfalla.
Við hjá Lífi og sál höfum langa reynslu af handleiðslu og ráðgjöf til einstaklinga og hópa og leggjum áherslu á að laga störf okkar að þörfum hvers viðskiptavinar. Frekari upplýsingar um handleiðslu starfshópa má finna hér.