Það getur verið erfitt að mæta og bregðast við fordómafullri umræðu á vinnustaðnum eða í persónulega lífinu.
Oftar en ekki frjósum við eða hundsum orðræðuna vegna þess að við erum óörugg og kannski ekki
með allar staðreyndir á hreinu - en það getur verið skaðlegt að leyfa slíkri orðræðu að standa óáreitt.
Í þessu námskeiði verður farið yfir hvernig er best að mæta fordómafullri orðræðu á samfélagsmiðlum
og á vinnustaðnum með áhrifaríkum samskiptaaðferðum sem draga úr, afhjúpa eða afvopna fordóma.
Þátttakendur fá tækifæri til þess að beita þessum aðferðum og æfa sig í samskiptaleiðum sem eru vænlegri
til árangurs þegar við stöndum frammi fyrir fordómum og jafnvel hatursorðræðu.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir heldur þessa fræðslu og er sérfræðingur í málefninu.
Hún hefur veigamikla reynslu á sviði hinsegin málefna, og hefur starfað í fræðslu og ráðgjöf í rúmlega 15 ár.
Hún er kynjafræðingur að mennt og hefur starfað fyrir samtök á borð við Samtökin '78, Stígamót,
Siðmennt og setið í stjórnum margra félagasamtaka. Hún leggur áherslu á jákvæð samskipti, virðingu og að
skapa öruggari rými fyrir okkur öll til að fræðast, eiga opin samtöl og vinna saman að því að skapa jákvæðara
og betra andrúmsloft á vinnustaðnum.