Auður Erla Gunnarsdóttir, sálfræðingur

audurerla(hjá)lifogsal.is

 

Auður Erla sinnir bæði einstaklingum og fyrirtækjum í starfi sínu hjá Lífi og sál. Hún notast við sannreyndar sálfræðilegar aðferðir og vinnur með m.a. með vanda tengdan streitu, kvíða, þunglyndi og kulnun í starfi.

 

Auður Erla starfaði sem sálfræðingur í grunn- og leikskólum á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts frá 2009-2013 og sem sálfræðingur á fræðslusviði Hafnarfjarðarbæjar 2013-2016. Frá 2016-2019 starfaði hún sem sálfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og svo á Barnaverndarstofu frá 2019-2022 sem meðferðaraðili í MST fjölkerfameðferð. Auður hefur í störfum sínum kennt fjölmörg námskeið af ýmsu tagi, fyrir foreldra, börn og fullorðna. Einnig starfaði Auður sem kennari við Menntaskólann í Kópavogi frá árinu 2000-2007.

 

Auður Erla lauk cand.psych. námi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Hún lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð (HAM) frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2019. Auður hefur jafnframt lokið meðferðarnámi í PMTO foreldrafærniþjálfun, og diplómanámi í kennslufræðum frá Háskóla Íslands.

 

Auður Erla er meðeigandi í Líf og sál sálfræði- og ráðgjafastofu.