Að framkvæma vandaðar úttektir með sanngjörnum og rökstuddum niðurstöðum er eitt, en að fylgja þeim eftir með árangursríkum hætti og viðeigandi aðgerðum, er einnig nauðsynlegt til að tryggja að málum ljúki á farsælan hátt.
Um er að ræða tveggja daga vinnustofu, ætlaða öllum sem gegna hlutverki í tengslum við úttektir á kvörtunum á vinnustöðum. Hvort sem er að bregðast við kvörtunum eða fylgja málum eftir með hjálplegum úrræðum og markvissum aðgerðum.
Á vinnustofunni verður m.a. fjallað um hvernig bregðast skuli við ágreiningi í kjölfar mála, hvernig stuðla má að því að samskipti milli málsaðila komist aftur í eðlilegt horf, og hvernig hagsmunir bæði vinnuveitanda og annarra aðila málsins eru tryggðir að úttekt lokinni.
Vinnustofan verður haldið á Hótel Nordica dagana 30.-31.október 2025.
Inn í námskeiðsgjaldi er öll kennsla, námsgögn og veitingar á meðan á námskeiðinun stendur.
ATH! Til þess að þátttakendur fái sem mest út úr vinnustofunni verður takmarkaður sætafjöldi og því um að gera að hafa hraðar hendur!
Námskeiðið hentar sérstaklega vinnuveitendum, mannauðsfólki, starfsfólki í vinnuvernd, trúnaðarmönnum og öryggistrúnaðarmönnum, en einnig lögfræðingum, vinnusálfræðingum og öðrum sem sinna ráðgjöf til vinnuveitenda í eftirvinnslu í kjölfar úttekta á EKKO eða öðrum úttektum á kvörtunum og tilkynningum um brot á vinnuverndarlögum.