Þrátt fyrir að á Íslandi séum við komin langt í réttindabaráttu hinsegin fólks þá mætir hinsegin
fólk ennþá mörgum áskorunum í samfélaginu, þ.m.t. á vinnustaðnum. Rannsóknir á Íslandi benda
til þess að hinsegin fólk upplifir enn fordóma, launamisrétti og misrétti, og sé hrætt að ræða hinseginleika
sinn opinskátt af hræðslu við neikvæð viðbrögð og framkomu.
Í þessu námskeiði verður farið yfir hvernig vinnustaðir og starfsfólk geta stuðlað að hinseginvænu umhverfi á
sínum vinnustað, þar sem við getum öll fengið að vera við sjálf án þess að óttast að það hafi áhrif á vinnuna
okkar eða starfsframa.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir heldur þessa fræðslu og er sérfræðingur í málefninu.
Hún hefur veigamikla reynslu á sviði hinsegin málefna, og hefur starfað í fræðslu og ráðgjöf í rúmlega 15 ár.
Hún er kynjafræðingur að mennt og hefur starfað fyrir samtök á borð við Samtökin '78, Stígamót,
Siðmennt og setið í stjórnum margra félagasamtaka. Hún leggur áherslu á jákvæð samskipti, virðingu og að
skapa öruggari rými fyrir okkur öll til að fræðast, eiga opin samtöl og vinna saman að því að skapa jákvæðara
og betra andrúmsloft á vinnustaðnum.