Við erum nýkomin heim af frábærri vinnusálfræðiráðstefnu sem haldin var af Evrópsku vinnusálfræðisamtökunum (EAWOP - European Association of Work and Organizational Psychology).
Við áttum frábæra tíma saman. Bæði lærðum við mikið og komumst í tengsl við frábært fólk sem bæði starfar á okkar sérsviði og sinnir rannsóknum.
Á föstudagskvöldið var haldin eins konar árshátíð þar sem þemað var Casino Royal. Sálfræðingar Lífs og sálar skörtuðu sínu fínasta pússi og fengu að spreyta sig í póker, blackjack og teningaspili. Allt var það til gamans gert og enginn fór blankur frá borði, enda ekki spilað upp á peninga.
Vigdís okkar var beðin um að taka lagið og hún skellti sér upp á svið og söng ,,Simply the best" við nokkurn fögnuð.
Það er dýrmætt að fara út á ráðstefnur sem þessa. Bæði styrkir það tengslin okkar hvert við annað auk þess sem við kynntumst mörgum öðrum sen eru í svipuðum hugleiðingum og við. Þá lærðum við líka margt og fengu alls konar hugmyndir sem við hyggjumst vinna að á næstunni.
Að fara á ráðstefnu er frábær leið til endurmenntunar og verður stefnan tekin á næstu EAWOP ráðstefnu í Lyon í Frakklandi árið 2027!