Líf og sál sálfræði- og ráðgjafastofa var stofnuð árið 2000 af sálfræðingunum Einari Gylfa Jónssyni og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur. Árið 2025 fagnaði fyrirtækið því 25 ára afmæli sínu. Frá upphafi hefur markmið stofunnar verið að styðja við andlega heilsu fólks og stuðla að heilbrigðu og öruggu starfsumhverfi.
Þórkatla starfar enn hjá Lífi og sál sem ráðgjafi, og sinnir því mikilvæga starfi að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp á stofunni í gegnum árin.
Í dag starfa hjá níu sálfræðingar hjá Lífi og sál. Þar að auki starfa sáttamiðlari og stjórnendaráðgjafi, skrifstofustjóri og móttökuritari. Sérfræðingar stofunnar sinna bæði einstaklingsviðtölum og ráðgjöf við fyrirtæki og stofnanir.
Starfsfólk Lífs og sálar býr yfir víðtækri sérþekkingu á sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum. Stofan tekur meðal annars að sér úttektir á EKKO-málum (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi) og veitir ráðgjöf til stjórnenda og mannauðsfólks þegar upp koma flókin starfsmannamál.
Jafnframt er lögð rík áhersla á forvarnir og uppbyggingu heilbrigðs vinnuumhverfis, þar sem markmiðið er að styrkja sálfélagslegt öryggi og vellíðan starfsfólks til lengri tíma.
Frá árinu 2003 hefur Líf og sál haft viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem þjónustuaðili á sviði vinnuverndar, með sérstaka áherslu á sálfélagslega áhættuþætti í vinnuumhverfi.