Katrín er klínískur sálfræðingur með sérþekkingu á vinnusálfræði og sálfélagslegu öryggi í starfsumhverfi. Í gegnum nám sitt og störf hefur hún sérhæft sig í þeim þáttum vinnuumhverfis sem hafa áhrif á andlega heilsu starfsfólks, svo sem streitu, álag, samskipti og stjórnun.
Í klínísku starfi vinnur Katrín með einstaklingum sem glíma við kvíða, þunglyndi og lágt sjálfsmat. Helstu áherslur hennar í starfi snúa að streitu, kulnun og krísum sem tengjast starfsumhverfi, þar sem hún aðstoðar fólk við að takast á við áskoranir sem geta komið upp í starfi, samskiptum og starfsþróun.
Í meðferð styðst Katrín við gagnreyndar aðferðir úr sálfræðinni, meðal annars hugræna atferlismeðferð (HAM) og Acceptance and Commitment Therapy (ACT).
Katrín starfar einnig náið með fyrirtækjum og stofnunum að málefnum sem tengjast sálfélagslegum þáttum vinnuumhverfis. Hún sinnir meðal annars vinnustaðagreiningum, úttektum á EKKO-málum og forvarnarvinnu þegar kemur að sálfélagslegum áhættuþáttum í starfi svo sem fræðslu og hóphandleiðslu.
Hún veitir jafnframt stjórnendahandleiðslu, þar sem hún nýtir sérþekkingu sína á vinnumarkaði og vinnusálfræði til að styðja stjórnendur í sínu starfi og við að takast á við mannauðs- og samskiptatengd viðfangsefni.
Katrín er viðurkenndur þjónustuaðili Vinnueftirlitsins á sviði sálfélagslegra áhættuþátta.
Hún lauk BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og cand.psych gráðu í klínískri sálfræði með áherslu á vinnusálfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 2014.
