Soffía Magnúsdóttir
Sálfræðingur

Soffía lauk Cand. Psych.-prófi frá sálfræðideild Háskóla Íslands árið 2014 og hefur fjölbreytta reynslu af vinnu við greiningu og meðferð geðræns vanda hjá fullorðnum.

Hún sinnir einstaklingum og vinnur meðal annars með vanda tengdan depurð, kvíða og áföllum.

Soffía notast við viðurkennda meðferð í starfi sínu, meðal annars hugræna atferlismeðferð (CBT), núvitund (mindfulness) og EMDR (Eye Movement Desensitization and Reprocessing). Soffía hefur meðal annars lokið námskeiði í CBT Theory and Formulation, hjá Endurmenntun Háskóla Íslands (grunnnámskeið i kortlagningu geðræns vanda skjólstæðinga, að hætti hugrænnar atferlismeðferðar); námskeiði í sjálfsvígsforvörnum með CAMS-nálgun á vegum Háskólans í Árósum; námskeiðum í greiningu og meðferð hugrofsraskana tengdum áfallastreitu á vegum norsku meðferðarstofnunarinnar Modum Bad; og þjálfun á 1.þrepi í EMDR (Eye Movement Desensitisation and Reprocessing), hjá norsku stofnuninni NKVTS.

Soffía hefur verið búsett í Noregi undanfarin ár, og starfað sem sálfræðingur þar. Hún hefur gegnt störfum á nokkrum ólíkum heilbrigðisstofnunum; á göngu-og innlagnardeild geðsviðs sjúkrahúss svo og við heilsugæslu.

soffia@lifogsal.is
soffía2