Við bjóðum upp á að gera þjónustusamning um ráðgjöf og stuðning vegna sálfélagslegrar vinnuverndar við fyrirtæki og stofnanir.
Markmið slíks samnings er:
Að tryggja starfsfólki forgang og styttri biðtíma að sálrænum stuðningi.
Að tryggja stjórnendum forgang að ráðgjöf, komi upp flókin og krefjandi starfsmannamál, m.a. vegna úttektar á sálfélagslegum áhættuþáttum (s.s. EKKO-mál).
Að fyrirtæki/stofnun njóti forgangs hjá L&S við gerð áhættumats á vinnustaðnum (sbr. lög nr.46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum).
Að fyrirtæki/stofnun njóti forgangs ef bregðast þarf á faglegan og styðjandi hátt við áföllum og ógnunum sem starfsfólk kann að verða fyrir í starfi sínu.
Að fyrirtæki/stofnun njóti forgangs varðandi fræðslu um samskipti, starfsanda og forvarnir varðandi einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað.
Að viðskiptavinur njóti sérkjara er varða kostnað við þjónustu.
Hafi þitt fyrirtæki eða stofnun áhuga á samning við Líf og sál má hafa samband í gegnum hnappinn hér að neðan eða í gegnum tölupóstfangið lifogsal@lifogsal.is.