Vinnustofan er grunnnámskeið í faglegri úttekt þegar upp koma erfið starfsmannamál. Kennd verður aðferð í meðferð mála sem er nefnd staðreyndarrannsókn (á norsku faktaundersøkelse).
Frekari upplýsingar um vinnustofuna og staðreyndarrannsóknir má finna hér.
Vinnustofan er ætluð fagfólki, sem starfar við úttektir og/eða í mannauðsmálum fyrirtækja og stofnanna og hafa færri komist að en vildu síðastliðin ár.
Vinnustofan verður haldin á Marriot hótelinu í Keflavík 27. - 29. október 2025.
Innifalið er kennsla, gisting í tvær nætur og fullt fæði á námskeiðstímanum. Vinnustofan samanstendur af fjögurra daga námskeiði sem þjappað er í þrjá daga. Því má reikna með tveimur löngum dögum en áætlað er að vinnustofunni ljúki um kl.15.30 þann 29. október , þ.e. þriðja námskeiðsdaginn. Þar sem þetta er þétt dagsskrá og mikið efni, fer Ståle fram á að fólk gisti á hótelinu og sleppi öðrum plönum á meðan á vinnustofunni stendur.
Námskeiðsgjald er 425.000.-
Að framkvæma vandaðar úttektir með sanngjörnum og rökstuddum niðurstöðum er eitt, en að fylgja þeim eftir með árangursríkum hætti og viðeigandi aðgerðum, er einnig nauðsynlegt til að tryggja að málum ljúki á farsælan hátt.
Um er að ræða tveggja daga vinnustofu, ætlaða öllum sem gegna hlutverki í tengslum við úttektir á kvörtunum á vinnustöðum. Hvort sem er að bregðast við kvörtunum eða fylgja málum eftir með hjálplegum úrræðum og markvissum aðgerðum.
Ítarupplýsingar um vinnustofuna má finna hér.
Á vinnustofunni verður m.a. fjallað um hvernig bregðast skuli við ágreiningi í kjölfar mála, hvernig stuðla má að því að samskipti milli málsaðila komist aftur í eðlilegt horf, og hvernig hagsmunir bæði vinnuveitanda og annarra aðila málsins eru tryggðir að úttekt lokinni.
Vinnustofan verður haldin á Hótel Nordica dagana 30.-31.október 2025.
Inn í námskeiðsgjaldi er öll kennsla, námsgögn og veitingar á meðan á vinnustofunni stendur.
Námskeiðsgjald er 210.000.-
Um er að ræða eins dags vinnustofu sem er framhald og dýpkun á þriggja daga grunnnámskeiðinu í faglegri úttekt á vinnustöðum (staðreyndarannsóknum, skref I) og veitir frekari þjálfun og dýpri skilning á aðferðinni. Vinnustofan er því eingöngu opin þátttakendum sem hafa þegar lokið grunnnámskeiðinu.
Ítarupplýsingar á vinnustofunni má finna hér.
Auk þess að vera góð leið til að bæta færni og skilning á staðreyndarrannsóknum er einnig gott að rifja upp og verða öruggari í þeim verkfærum sem kennd voru á grunnnámskeiðum áranna 2023 og 2024. Þá geta þau sem ætla sér á grunnnámskeiðið í ár einnig tekið þátt og dýpkað sinn skilning.
Helstu áhersluatriði vinnustofunnar er reynslumiðlun, aukin hagnýt þjálfun í viðtölum og framkvæmd staðreyndarannsókna, í samræmi við vinnuverndarlögin og reglugerð nr.1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er öll kennsla og aðbúnaður, námskeiðsgögn að auki við veitingar á meðan á vinnustofunni stendur.
Námskeiðsgjald er 110.000.-
Skráning á allar vinnustofur er hafin og vert að minnast á að undanfarin ár komust færri að en vildu.