Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Helga Þórólfsdóttir
Menntun
Félagsráðgjöf frá Lundarháskóla 1981, meistarapróf í lausn ágreiningsmála (2004) og friðarfræðum (2005) frá Háskólanum í Bradford

Helga hefur víðtæka reynslu af stjórnun, stjórnendaráðgjöf og sáttamiðlun og hefur starfað sem sáttamiðlari og stjórnendaráðgjafi hjá Lífi og sál frá 2019.

Þar áður var hún fimm ár í stjórnendateymum Alþjóða Rauða krossins í Írak, Íran og Evrópu (Búdapest), þar sem hún veitti stjórnendum ráðgjöf um samstarf við innlenda samstarfsaðila. Sáttamiðlun var hluti starfsins þegar upp komu erfiðleikar í samstarfi.

Helga lauk prófi í félagsráðgjöf frá Lundarháskóla í Svíþjóð 1981 og sérhæfði sig í fjölskylduráðgjöf og sáttamiðlun. Hún lauk meistaraprófi frá Háskólanum í Bradford á Englandi í lausn ágreiningsmála 2004 og friðarfræðum 2005.

Á árunum 1993 til 2008 stýrði Helga hjálparstarfi á vettvangi átaka og náttúruhamfara og var síðan yfirmaður alþjóðastarfs Rauða kross Íslands. Hún hefur kennt og stundað rannsóknir í jafnréttismálum og friðar- og átakafræðum (Kaupmannahafnarháskóli, HÍ og Bifröst) og starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, meðal annars fyrir utanríkisráðuneytið og NATO, og sem þróunar- og jafnréttisfulltrúi í Afganistan.

Helga hefur sótt fjölda námskeiða varðandi stjórnun og hjálparstarf og verið fyrirlesari á alþjóðaráðstefnum.