Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar

Forvarnir á vinnustöðum

Eitt meginmarkmið Lífs og sálar er að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á Íslandi. Við aðstoðum fyrirtæki og stofnanir við að viðhalda og byggja upp jákvæða menningu á vinnustöðum, með áhættumati, fræðslu, ráðgjöf við stjórnendur og handleiðslu fyrir starfshópa.

EKKO – forvarnir og viðbrögð

Á 25 árum hefur Líf og sál öðlast mikla þekkingu og reynslu af úttektum, úrvinnslu og forvörnum vegna samskiptaerfiðleika, eineltis og áreitni á vinnustöðum. Við aðstoðum við viðbragðsáætlanir, úttektir, vinnustaðagreiningar, fræðslu, sáttamiðlun og handleiðslu.

Sálfræðiviðtöl – einstaklingsþjónusta

Sálfræðingar Lífs og sálar hafa mikla reynslu af sálfræðilegri meðferð fullorðinna við ýmiss konar vanda og sinna einnig stuðningi og ráðgjöf eftir áföll eða vegna annars sem upp kemur í lífinu.

Vinnustaðagreiningar og áhættumat

Vinnustaðagreining og áhættumat eru leiðir til að meta og greina sálfélagslega áhættuþætti í starfsumhverfinu. Upplýsingarnar sem þannig fást sýna hvar vinnustaðurinn stendur varðandi starfsánægju, samskipti, álag og streitu, vinnustaðamenningu og stjórnun.

Mannauðsráðgjöf og stjórnendahandleiðsla

Stjórnendahandleiðsla og mannauðsráðgjöf geta bæði verið veitt tímabundið vegna tiltekinna mála eða verkefna, eða sem liður í starfsþróun yfir lengri tíma. Við bjóðum handleiðslu og ráðgjöf fyrir stjórnendur og starfshópa og einstaklingshandleiðslu fyrir starfsfólk.

Sáttamiðlun innan vinnustaða

Sáttamiðlun innan vinnustaða er sérsvið innan sáttamiðlunar. Hún er gagnlegt úrræði þegar starfsfólk er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að breyta erfiðum samskiptum með aðstoð utanaðkomandi aðila.

Fræðsla og námskeið

Markmið okkar er að bæta vinnustaðamenningu á Íslandi, og liður í því er að bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrirlestra, vinnustofa og námskeiða fyrir starfshópa og stjórnendur. Við sníðum fræðsluna að þörfum og óskum hvers vinnustaðar.

Þjónustusamningar

Líf og sál gerir þjónustusamninga við fyrirtæki og stofnanir um ráðgjöf og stuðning vegna sálfélagslegrar vinnuverndar. Samningurinn tryggir forgang að allri þjónustu Lífs og sálar.

Vinnustofur 2027 með Ståle Einarsen

Í apríl 2027 heldur Líf og sál, í samstarfi við Ståle Einarsen, þrjár ólíkar vinnustofur fyrir fagfólk. Ståle er prófessor í vinnu- og skipulagssálfræði við félagssálfræðideild Háskólans í Bergen og sérfræðingur í EKKO-málum og faglegum úttektum á vinnustöðum.

Þjónusta — Líf og sál