Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Fræðsla og námskeið

Markmið okkar er að bæta vinnustaðamenningu á Íslandi, og liður í því er að bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrirlestra, vinnustofa og námskeiða fyrir starfshópa og stjórnendur. Við sníðum fræðsluna að þörfum og óskum hvers vinnustaðar.

Hvernig fer fræðslan fram?

Við leggjum áherslu á að fræðslan sé í senn hagnýt, fræðandi og uppbyggileg, hvort sem um er að ræða styttri eða lengri fræðslu. Hver vinnustaður og starfshópur er einstakur og tekst á við ólíkar áskoranir, og því sníðum við fyrirlestra, vinnustofur og námskeið að hverjum vinnustað. Lengd fræðslu fer eftir óskum vinnustaðarins en algengt er að hún sé 60 til 90 mínútur. Hér að neðan eru algeng efnistök. Listinn er ekki tæmandi og algengt er að fræðsla sé sett saman úr tveimur eða fleiri efnisatriðum.

Einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni, ofbeldi (EKKO)

Fjallað er um gagnlegar leiðir í samskiptum á vinnustöðum og hugað að þeim hindrunum sem kunna að mæta okkur, og litið til helstu leiða til að halda í góðan starfsanda og sálrænt öryggi í starfshópnum. Efnistök: skilgreiningar hugtaka, birtingarmyndir neikvæðrar hegðunar, afleiðingar fyrir einstaklinga og starfshópinn, forvarnir og sálrænt öryggi.

Lesa meira →

Fagleg nálgun í EKKO-málum, vinnustofa fyrir stjórnendur og mannauðsfólk

Fjallað er um gagnsemi skýrra verkferla og stefnu, farið skref fyrir skref yfir faglegt verklag og hlutverk stjórnanda og annarra í slíkum málum, og litið til helstu álitaefna og hindrana. Unnið er verkefni og lögð áhersla á hvernig styðja má við starfshópinn og einstaklingana á erfiðum tímum. Lengd 3 til 6 klukkustundir.

Lesa meira →

Samskipti og líðan á vinnustað

Hvað einkennir góð og slæm samskipti á vinnustað og hver eru áhrif þeirra? Fjallað er um starfshlutverk, fagmennsku, starfsanda, samskiptaaðferðir, að setja mörk og gagnrýni, og farið yfir birtingarmyndir eineltis og áreitni og hvernig fyrirbyggja má að neikvæðir samskiptahættir nái að þrífast.

Lesa meira →

Að vera hinsegin á vinnustaðnum – er ég öruggt?

Hinsegin fólk mætir enn mörgum áskorunum, meðal annars á vinnustaðnum. Farið er yfir hvernig vinnustaðir og starfsfólk geta stuðlað að hinseginvænu umhverfi þar sem við getum öll fengið að vera við sjálf. Efnistök: fordómar, jafnrétti allra á vinnustöðum og hagnýt ráð. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir kynjafræðingur heldur fræðsluna.

Lesa meira →

Að mæta fordómafullri umræðu

Farið er yfir hvernig best er að mæta fordómafullri orðræðu á samfélagsmiðlum og á vinnustaðnum, með samskiptaaðferðum sem draga úr, afhjúpa eða afvopna fordóma. Þátttakendur fá tækifæri til að æfa sig. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir kynjafræðingur heldur fræðsluna.

Lesa meira →

Að þrífast í krefjandi starfi

Hagnýtar aðferðir við að takast á við álagsþætti í vinnunni, með áherslu á það sem reynist krefjandi í starfsumhverfi hópsins. Efnistök: krefjandi starfsumhverfi og sálfélagslegt öryggi, streitustjórnun, uppbyggileg viðhorf og árangursrík samskipti.

Lesa meira →

Samskipti við krefjandi viðskiptavini

Fjallað er um samskipti við viðskiptavini sem eru krefjandi í samskiptum, jafnvel vegna erfiðleika eða áfalla, hvernig best er að bregðast við, halda jafnaðargeði og brynja sig fyrir neikvæðum áhrifum slíkra samskipta.

Lesa meira →

Breytingar og áhrif þeirra

Sumt fólk sér tækifæri í breytingum á meðan öðrum stendur ógn af þeim. Farið er yfir ólík áhrif breytinga og uppbyggilegar leiðir til að takast á við þær.

Lesa meira →

Eftir krefjandi tíma – að hverju þarf að huga?

Hverju þarf að huga að eftir krefjandi tíma, svo sem breytingar, mikið álag eða annan mótbyr? Áhersla er lögð á uppbyggileg viðhorf, ábyrgð á eigin heilsu, árangursrík samskipti, jafnvægi milli vinnu og einkalífs og uppbyggingu liðsheildar.

Lesa meira →

Góð liðsheild

Á vinnustöðum mætast ólíkir einstaklingar með ólíkan bakgrunn. Fjallað er um ávinning góðrar liðsheildar, hvernig stuðla megi að henni og hvað kann að ógna henni og góðri samvinnu.

Lesa meira →

Áföll og óvissa

Farið er yfir áhrif áfalla, algeng fyrstu viðbrögð og tilfinningar, og hagnýtar leiðir til að bæta líðan á erfiðum tímum, í hópnum og hjá hverjum og einum.

Lesa meira →

Starfslok – að hverju þarf að huga

Fjallað er um andlegan og tilfinningalegan undirbúning fyrir starfslok og leiðir til að halda í andlega heilsu og sálrænt öryggi, og njóta frelsisins.

Lesa meira →

Algengar spurningar

Hversu löng er fræðslan?

Það fer eftir óskum vinnustaðarins, en algengt er að fræðsla sé 60 til 90 mínútur. Vinnustofan um faglega nálgun í EKKO-málum er 3 til 6 klukkustundir.

Er hægt að sníða fræðsluna að okkar vinnustað?

Já. Við sníðum fyrirlestra, vinnustofur og námskeið að þörfum hvers vinnustaðar, og algengt er að fræðsla sé sett saman úr tveimur eða fleiri efnisatriðum.

Fræðsla fyrir vinnustaðinn

Hafa samband