← Fræðsla og námskeið
Fagleg nálgun í EKKO-málum, vinnustofa fyrir stjórnendur og mannauðsfólk

- Lengd
- 3–6 klst.
- Fyrir
- Stjórnendur og mannauðsfólk
Ágreiningur og samskiptavandi eru gjarnan flókin verkefni og geta haft mikil áhrif á alla viðkomandi. Þá eru fagleg viðbrögð mjög mikilvæg svo unnt sé að leysa málin á farsælan hátt.
Á þessari vinnustofu er fjallað um gagnsemi skýrra verkferla og stefnu, farið skref fyrir skref yfir faglegt verklag og hlutverk stjórnanda og annarra í slíkum málum. Þá verður einnig litið til helstu álitaefna og mögulegra hindrana sem kunna að mæta stjórnendum og mannauðsfólki. Unnið er verkefni þar að lútandi og áhersla lögð á hvernig styðja má við starfshópinn og einstaklingana á erfiðum tímum.
Efnistök
- Gagnsemi skýrra verkferla og stefnu
- Faglegt verklag og hlutverk stjórnanda
- Helstu álitaefni og mögulegar hindranir
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
