Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar

Markmið okkar hjá Lífi og sál er að bæta vinnustaðamenningu á Íslandi og liður í því er að bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrirlestra, vinnustofa og námskeiða fyrir starfshópa og stjórnendur. Við leggjum áherslu á að fræðslan sé allt í senn hagnýt, fræðandi og uppbyggileg, hvort sem um styttri eða lengri fræðslu er að ræða.

Hver og einn vinnustaður og starfshópur er einstakur og tekst á við ólíkar áskoranir. Því sníðum við fyrirlestra, vinnustofur og námskeið okkar að þörfum og óskum hvers vinnustaðar fyrir sig.

Hér að neðan má sjá algeng efnistök. Listinn er ekki tæmandi og algengt að fræðsla sé samsett úr tveimur eða fleiri efnisatriðum.

Samskipti og líðan á vinnustað

Fjallað er um hvaða einkennir góð og slæm samskipti á vinnustað og áhrif þeirra. Fjallað um starfshlutverk, fagmennsku, starfsanda, samskiptaaðferðir, að setja mörk og gagnrýni.

Lesa meira

Að mæta fordómafullri umræðu

Það getur verið erfitt að mæta og bregðast við fordómafullri umræðu á vinnustaðnum eða í persónulega lífinu. Oftar en ekki frjósum við eða hundsum orðræðuna vegna þess að við erum óörugg og kannski ekki með allar staðreyndir á hreinu - en…

Lesa meira

Að þrífast í krefjandi starfi

Í þessari fræðslu er fjallað um hagnýtar aðferðir við að takast á við þá álagsþætti sem mæta okkur í vinnunni. Er áhersla lögð á þá þætti sem reynast krefjandi í starfsumhverfi starfshópsins, fjallað um gagnleg viðhorf og leiðir til að…

Lesa meira

Samskipti við krefjandi viðskiptavini

Fjallað er um samskipti við viðskiptavini sem eru krefjandi í samskiptaháttum sínum, sem jafnvel eru í ójafnvægi vegna erfiðleika eða áfalla. Farið er yfir hvernig er best að bregðast við, hvernig hægt er að halda jafnaðargeði og brynja…

Lesa meira

Breytingar og áhrif þeirra

Í þessari fræðslu er fjallað um breytingar og ólík áhrif þeirra á okkur. Sumt fólk sér tækifæri í breytingum, á meðan öðru fólki stendur ógn af þeim.

Lesa meira

Góð liðsheild

Á vinnustöðum mætast ólíkir einstaklingar, með ólíkan bakgrunn og sögu. Góð samskipti, sveigjanleiki fólks gagnvart hvert öðru og gagnleg viðhorf eru lykilþættir þess að verkefnin og vinnan gangi vel.

Lesa meira

Áföll og óvissa

Hér er farið yfir áhrif áfalla, algeng fyrstu viðbrögð og tilfinningar. Fjallað um hagnýtar leiðir til að bæta líðan á erfiðum tímum, í hópnum og hjá hverjum og einum. Efnistök. Áhrif áfalla og óvissu á einstaklinginn og hópinn.

Lesa meira

Fræðsla fyrir vinnustaðinn

Fræðsla fyrir vinnustaðinn