Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar

Líf og sál sálfræði- og ráðgjafastofa var stofnuð árið 2000 af sálfræðingunum Einari Gylfa Jónssyni og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur. Árið 2025 fagnaði stofan 25 ára afmæli sínu. Frá upphafi hefur markmið stofunnar verið að styðja við andlega heilsu fólks og stuðla að heilbrigðu og öruggu starfsumhverfi.

Þórkatla starfar enn hjá Lífi og sál sem ráðgjafi og sinnir því mikilvæga starfi að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp á stofunni í gegnum árin.

Í dag starfa átta sálfræðingar hjá Lífi og sál. Þar að auki starfa á stofunni sáttamiðlari og stjórnendaráðgjafi, auk móttökuritara. Sérfræðingar stofunnar sinna bæði einstaklingsviðtölum og ráðgjöf við fyrirtæki og stofnanir.

Starfsfólk Lífs og sálar býr yfir víðtækri sérþekkingu á sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum. Stofan tekur meðal annars að sér úttektir í EKKO-málum (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi) og veitir ráðgjöf til stjórnenda og mannauðsfólks þegar upp koma flókin starfsmannamál.

Jafnframt er lögð rík áhersla á forvarnir og uppbyggingu heilbrigðs starfsumhverfis, þar sem markmiðið er að styrkja sálfélagslegt öryggi og vellíðan starfsfólks til lengri tíma.

Frá árinu 2003 hefur Líf og sál haft viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem þjónustuaðili á sviði vinnuverndar, með sérstakri áherslu á sálfélagslega áhættuþætti í vinnuumhverfi.

Fyrirtækjaupplýsingar

Heimilisfang
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík

Starfsfólk

Þórkatla Aðalsteinsdóttir

Sálfræðingur, meðeigandi og sérfræðingur í vinnuvernd

Auður Erla Gunnarsdóttir

Sálfræðingur, meðeigandi og sérfræðingur í vinnuvernd

Katrín Kristjánsdóttir

Sálfræðingur, meðeigandi og sérfræðingur í vinnuvernd

Vigdís Ásgeirsdóttir

Sálfræðingur, meðeigandi og sérfræðingur í vinnuvernd

Jóhann B Arngrímsson

Sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd

Sigurrós Friðriksdóttir

Sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd

Soffía Magnúsdóttir

Sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd

Katla Marín Stefánsdóttir

Sálfræðingur og mannauðsráðgjafi, í orlofi

Helga Þórólfsdóttir

Sáttamiðlari og stjórnendaráðgjafi

Sigríður Oddsdóttir

Móttökuritari og ómissandi