Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Auður Erla Gunnarsdóttir
Menntun
Cand. psych. frá Háskóla Íslands 2009, sérnám í HAM frá Endurmenntun HÍ 2019

Auður Erla sinnir málefnum tengdum sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum, vinnustaðagreiningum, eineltismálum og öðru sem lýtur að líðan fólks í starfsumhverfi þess. Hún er með viðurkenningu sem þjónustuaðili í sálfélagslegum áhættuþáttum hjá Vinnueftirlitinu.

Auður Erla notast við gagnreyndar sálfræðilegar aðferðir og vinnur meðal annars með vanda tengdan streitu, kvíða, þunglyndi og kulnun í starfi.

Auður Erla starfaði sem sálfræðingur í grunn- og leikskólum á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts 2009 til 2013 og á fræðslusviði Hafnarfjarðarbæjar 2013 til 2016. Frá 2016 til 2019 starfaði hún hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á Barnaverndarstofu 2019 til 2022 sem meðferðaraðili í MST-fjölkerfameðferð. Hún hefur kennt fjölmörg námskeið fyrir foreldra, börn og fullorðna, og var kennari við Menntaskólann í Kópavogi 2000 til 2007.

Auður Erla lauk cand. psych. námi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2009 og sérnámi í hugrænni atferlismeðferð (HAM) frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2019. Hún hefur jafnframt lokið meðferðarnámi í PMTO-foreldrafærniþjálfun og diplómanámi í kennslufræðum frá Háskóla Íslands.