Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Þórkatla Aðalsteinsdóttir
Menntun
Cand. psych. frá Lundarháskóla 1989, BA frá Háskóla Íslands 1980

Þórkatla sinnir málefnum tengdum sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum, vinnustaðagreiningum, eineltismálum og öðru sem lýtur að líðan fólks í starfsumhverfi þess. Hún er með viðurkenningu sem þjónustuaðili í sálfélagslegum áhættuþáttum hjá Vinnueftirlitinu.

Þórkatla er meðeigandi og annar stofnandi Lífs og sálar sálfræði- og ráðgjafastofu, sem var stofnuð árið 2000. Hún hefur langa reynslu á sviði meðferðar, handleiðslu og ráðgjafar til fagaðila og stjórnenda og hefur sótt fjölda námskeiða á sviði sálfræðimeðferðar, sálfélagslegra áhættuþátta á vinnustöðum, áfallavinnu og ráðgjafar. Hún er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands og Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga.

Þórkatla hefur í gegnum feril sinn haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um uppeldismál, samskipti á vinnustöðum, streitu, áföll og fleira tengt líðan á vinnustað.

Þórkatla lauk cand. psych. prófi frá Lundarháskóla 1989 og BA-prófi frá Háskóla Íslands 1980. Hún starfaði sem sálfræðingur hjá Dagvist barna í Reykjavík í sjö ár eftir sálfræðipróf, en áður hafði hún meðal annars starfað sem kennari, meðferðarfulltrúi, landvörður og skálavörður á fjöllum.