
- Menntun
- BS í sálfræði frá Háskóla Íslands 2009, cand. psych. í klínískri sálfræði með áherslu á vinnusálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 2014
- Meðferðarnálgun
- Hugræn atferlismeðferð (HAM) og ACT
- Netfang
- katrin@lifogsal.is
Katrín er klínískur sálfræðingur með sérþekkingu á vinnusálfræði og sálfélagslegu öryggi í starfsumhverfi. Hún hefur sérhæft sig í þeim þáttum vinnuumhverfis sem hafa áhrif á andlega heilsu starfsfólks, svo sem streitu, álagi, samskiptum og stjórnun.
Í klínísku starfi vinnur Katrín með einstaklingum sem glíma við kvíða, þunglyndi og lágt sjálfsmat. Helstu áherslur hennar snúa að streitu, kulnun og krísum sem tengjast starfsumhverfi. Í meðferð styðst hún við gagnreyndar aðferðir, meðal annars hugræna atferlismeðferð (HAM) og Acceptance and Commitment Therapy (ACT).
Katrín starfar náið með fyrirtækjum og stofnunum og sinnir meðal annars vinnustaðagreiningum, úttektum á EKKO-málum og forvarnarvinnu, svo sem fræðslu og hóphandleiðslu. Hún veitir jafnframt stjórnendahandleiðslu. Katrín er viðurkenndur þjónustuaðili Vinnueftirlitsins á sviði sálfélagslegra áhættuþátta.
Hún lauk BS-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands 2009 og cand. psych. gráðu í klínískri sálfræði með áherslu á vinnusálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 2014.
