Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Katla Marín Stefánsdóttir
Menntun
MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2024, BSc í sálfræði frá sama skóla 2019
Meðferðarnálgun
Hugræn atferlismeðferð (HAM)

Katla Marín sinnir meðferð og ráðgjöf fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Hún beitir gagnreyndum aðferðum, fyrst og fremst hugrænni atferlismeðferð (HAM), og vinnur með fjölþættan vanda, svo sem þunglyndi, kvíða, lágt sjálfsmat, streitu, kulnun og tilfinningavanda. Hún sinnir einnig málefnum tengdum sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum.

Katla Marín lauk MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2024 og BSc í sálfræði frá sama skóla 2019. Í starfsnámi var hún nemi hjá DAM-teymi Landspítalans og þjónustumiðstöð norður, undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Hún hefur einnig lokið 60 einingum í meistaranámi í öldrunarfræði við Háskóla Íslands.

Áður starfaði Katla sem sálfræðingur á Landspítalanum í Þunglyndis- og kvíðateyminu (ÞOK), stuðningsúrræðinu Byggjum brú og Öldrunargeðteymi, og hefur þaðan mikla reynslu af vinnu með fólki í sjálfsvígshættu.