
- Menntun
- BS og cand. psych. í sálfræði frá Háskóla Íslands
- Meðferðarnálgun
- Hugræn atferlismeðferð (HAM)
- Netfang
- vigdis@lifogsal.is
Vigdís sinnir málefnum tengdum sálfélagslegu öryggi á vinnustöðum, vinnustaðagreiningum, eineltismálum, fræðslu og öðru sem lýtur að líðan fólks í starfsumhverfi þess. Hún sinnir einnig ráðgjöf til mannauðsfólks og handleiðslu til stjórnenda og starfsfólks. Hún vinnur meðal annars með vanda tengdan streitu, kvíða, þunglyndi og kulnun í starfi og beitir hugrænni atferlismeðferð (HAM).
Vigdís hefur mikla reynslu af meðferð fólks í hinsegin samfélaginu, hvort sem um ræðir kynama eða sálrænan vanda tengdan kynhneigð eða kynvitund. Hún er með viðurkenningu sem þjónustuaðili í sálfélagslegum áhættuþáttum hjá Vinnueftirlitinu.
Vigdís lauk BS-gráðu og cand. psych. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hún hlaut starfsþjálfun í transteymi Landspítalans. Rannsókn hennar í cand. psych. náminu var hluti af rannsókninni Áfallasaga kvenna við Háskóla Íslands og sneri að sambandi seiglu og áfallastreitueinkenna.
