Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Sigurrós Friðriksdóttir
Menntun
Cand. psych. frá Háskóla Íslands 2011, M.Sc. í Corporate Communications frá Háskólanum í Lugano
Meðferðarnálgun
HAM, áfallamiðuð HAM (TF-CBT), CPT, núvitund og EMDR

Sigurrós lauk cand. psych. prófi frá Háskóla Íslands 2011 og hefur síðan starfað sem sálfræðingur, bæði við greiningar og ráðgjöf og við meðferðarvinnu. Hún hefur víðtæka reynslu af vinnu með börnum og unglingum og stuðnings- og ráðgjafarviðtölum við foreldra, og hefur starfað sem sálfræðingur fullorðinna á Heilsugæslunni Heilsuvernd.

Áður en Sigurrós hóf störf hjá Lífi og sál starfaði hún sem sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi í Barnahúsi, þar sem hún veitti börnum og unglingum sem orðið höfðu fyrir ofbeldi áfallameðferð og foreldrum þeirra stuðningsviðtöl, og tók könnunarviðtöl og skýrslutökur fyrir dómi. Hún starfaði einnig um árabil hjá Barnaþjónustu SÁÁ.

Sigurrós notast við gagnreynda meðferð, svo sem hugræna atferlismeðferð (CBT), áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð (TF-CBT), hugræna úrvinnslumeðferð (CPT), núvitund og EMDR. Hún hefur meðal annars hlotið þjálfun í CF-TSI, TF-CBT og rannsóknarviðtalstækni hjá National Children’s Advocacy Center og lokið 1. þrepi í EMDR. Hún hefur einnig lokið M.Sc. gráðu í Corporate Communications við Háskólann í Lugano í Sviss og er lærður jógakennari.

Sigurrós er viðurkenndur þjónustuaðili Vinnueftirlitsins á sviði sálfélagslegra áhættuþátta.