← Fræðsla og námskeið
Breytingar og áhrif þeirra

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
Í þessari fræðslu er fjallað um breytingar og ólík áhrif þeirra á okkur. Sumt fólk sér tækifæri í breytingum, á meðan öðru fólki stendur ógn af þeim. Farið er yfir hvað hægt er að gera til að takast á við krefjandi breytingar á uppbyggilegan hátt.
Efnistök
- Breytingar og ólík áhrif þeirra
- Tækifæri og ógnanir sem fylgja breytingum
- Uppbyggilegar leiðir til að takast á við breytingar
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
