← Fræðsla og námskeið
Samskipti við krefjandi viðskiptavini

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
Fjallað er um samskipti við viðskiptavini sem eru krefjandi í samskiptaháttum sínum, sem jafnvel eru í ójafnvægi vegna erfiðleika eða áfalla. Farið er yfir hvernig er best að bregðast við, hvernig hægt er að halda jafnaðargeði og brynja sig fyrir neikvæðum áhrifum þess að vera í slíkum samskiptum.
Efnistök
- Að vera fagmaður
- Algeng viðbrögð og tilfinningar
- Hagnýtar leiðir til að mæta krefjandi samskiptum
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
