← Fræðsla og námskeið
Samskipti og líðan á vinnustað

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
Fjallað er um hvaða einkennir góð og slæm samskipti á vinnustað og áhrif þeirra. Fjallað um starfshlutverk, fagmennsku, starfsanda, samskiptaaðferðir, að setja mörk og gagnrýni. Farið er yfir birtingarmyndir eineltis og áreitni og hvernig hægt er að fyrirbyggja að neikvæðir samskiptahættir nái að þrífast á vinnustaðnum.
Efnistök
- Fagleg samskipt
- Jákvæðar og neikvæðar aðferðir í samskiptum
- Siðir og venjur
- Að setja mörk
- Ábyrgð einstaklingsins
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
