Að mæta fordómafullri umræðu

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
- Leiðbeinandi
- Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
Það getur verið erfitt að mæta og bregðast við fordómafullri umræðu á vinnustaðnum eða í persónulega lífinu. Oftar en ekki frjósum við eða hundsum orðræðuna vegna þess að við erum óörugg og kannski ekki með allar staðreyndir á hreinu - en það getur verið skaðlegt að leyfa slíkri orðræðu að standa óáreitt.
Í þessu námskeiði verður farið yfir hvernig er best að mæta fordómafullri orðræðu á samfélagsmiðlum og á vinnustaðnum með áhrifaríkum samskiptaaðferðum sem draga úr, afhjúpa eða afvopna fordóma. Þátttakendur fá tækifæri til þess að beita þessum aðferðum og æfa sig í samskiptaleiðum sem eru vænlegri til árangurs þegar við stöndum frammi fyrir fordómum og jafnvel hatursorðræðu.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir heldur þessa fræðslu og er sérfræðingur í málefninu. Hún hefur veigamikla reynslu á sviði hinsegin málefna, og hefur starfað í fræðslu og ráðgjöf í rúmlega 15 ár. Hún er kynjafræðingur að mennt og hefur starfað fyrir samtök á borð við Samtökin '78, Stígamót, Siðmennt og setið í stjórnum margra félagasamtaka. Hún leggur áherslu á jákvæð samskipti, virðingu og að skapa öruggari rými fyrir okkur öll til að fræðast, eiga opin samtöl og vinna saman að því að skapa jákvæðara og betra andrúmsloft á vinnustaðnum.
Efnistök
- Fordómar á vinnustað eða í einkalífinu
- Áhrif á sálfélagslegt öryggi
- Hagnýtar samskiptaleiðir til að mæta fordómafullri orðræðu
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
