Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Lengd
Yfirleitt 60–90 mínútur
Fyrir
Starfshópa og stjórnendur

Á vinnustöðum mætast ólíkir einstaklingar, með ólíkan bakgrunn og sögu. Góð samskipti, sveigjanleiki fólks gagnvart hvert öðru og gagnleg viðhorf eru lykilþættir þess að verkefnin og vinnan gangi vel. Í þessari fræðslu er fjallað um ávinning góðrar liðsheildar, hvernig megi stuðla að henni auk þess sem fjallað er um hvað kann að ógna liðsheildinni og góðri samvinnu á vinnustöðum.

Efnistök

  • Mikilvægi góðra samskipta
  • Áhrif neikvæðra samskipta
  • Gagnleg viðhorf og sveigjanleiki
  • Liðsheild og samvinna
  • Ógnir og áskoranir
  • Ábyrgð hvers og eins

Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.

Fræðsla fyrir vinnustaðinn