Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Lengd
Yfirleitt 60–90 mínútur
Fyrir
Starfshópa og stjórnendur

Á undanförnum 25 árum hefur Líf og sál öðlast mikla þekkingu og reynslu af úttektum, úrvinnslu og forvörnum vegna samskiptaerfiðleika, eineltis og áreitni á vinnustöðum. Góð samskipti á vinnustað eru lykilþáttur er varðar líðan starfsfólks, samvinnu og samstöðu. Eðlilegt er að stöku ágreiningur komi upp í samskiptum á vinnustað en mikilvægt er að séð sé til þess að samskipta- erfiðleikar fái ekki að þrífast á vinnustaðnum.

Fjallað er um gagnlegar leiðir í samskiptum á vinnustöðum og hugað að þeim hindrunum sem kunna að mæta okkur. Einnig er litið til helstu leiða til að halda í góðan starfsanda og sálrænt öryggi í starfshópnum.

Efnistök

  • Skilgreiningar hugtaka ekko
  • Birtingarmyndir neikvæðrar hegðunar
  • Afleiðingar fyrir einstaklinga og starfshópinn
  • Forvarnir og sálrænt öryggi í starfshópnum

Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.

Fræðsla fyrir vinnustaðinn