Að vera hinsegin á vinnustaðnum – er ég öruggt?

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
- Leiðbeinandi
- Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
Þrátt fyrir að á Íslandi séum við komin langt í réttindabaráttu hinsegin fólks þá mætir hinsegin fólk ennþá mörgum áskorunum í samfélaginu, þ.m.t. á vinnustaðnum. Rannsóknir á Íslandi benda til þess að hinsegin fólk upplifir enn fordóma, launamisrétti og misrétti, og sé hrætt að ræða hinseginleika sinn opinskátt af hræðslu við neikvæð viðbrögð og framkomu.
Í þessu námskeiði verður farið yfir hvernig vinnustaðir og starfsfólk geta stuðlað að hinseginvænu umhverfi á sínum vinnustað, þar sem við getum öll fengið að vera við sjálf án þess að óttast að það hafi áhrif á vinnuna okkar eða starfsframa.
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir heldur þessa fræðslu og er sérfræðingur í málefninu. Hún hefur veigamikla reynslu á sviði hinsegin málefna, og hefur starfað í fræðslu og ráðgjöf í rúmlega 15 ár. Hún er kynjafræðingur að mennt og hefur starfað fyrir samtök á borð við Samtökin '78, Stígamót, Siðmennt og setið í stjórnum margra félagasamtaka. Hún leggur áherslu á jákvæð samskipti, virðingu og að skapa öruggari rými fyrir okkur öll til að fræðast, eiga opin samtöl og vinna saman að því að skapa jákvæðara og betra andrúmsloft á vinnustaðnum.
Efnistök
- Fordómar
- Jafnrétti allra á vinnustöðum
- Hagnýt ráð við að skapa jákvætt og gott umhverfi fyrir öll
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
