← Fræðsla og námskeið
Eftir krefjandi tíma – að hverju þarf að huga?

- Lengd
- Yfirleitt 60–90 mínútur
- Fyrir
- Starfshópa og stjórnendur
Í þessari fræðslu er fjallað um hverju beri að huga að eftir krefjandi tíma, svo sem vegna breytinga, mikils álags eða annars mótbyrs á vinnustaðnum. Lögð er áhersla á mikilvægi uppbyggilegra viðhorfa og ábyrgðar á andlegri og líkamlegri heilsu, helstu verkfæri til að mæta henni á gagnlegan hátt og fjallað um leiðir til árangursríkra samskipta og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Hvað einkenni árangursrík teymi og stuðli að góðri liðsheild.
Efnistök
- Áhrif breytinga og mótbyrs
- Streitu og leiðir til að mæta henni
- Ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
- Mikilvægi árangursríkra samskipta
- Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
- Uppbygging liðsheildar og starfsanda
Fræðslan er sniðin að þörfum og óskum hvers vinnustaðar og getur verið hluti af lengri fræðslu sem fjallar um fleiri efnisatriði.
