Fara í aðalefni
Skráning er hafin á vinnustofur með Ståle Einarsen í apríl 2027 Sjá nánar
Sálfræðiviðtöl – einstaklingsþjónusta

Sálfræðingar Lífs og sálar hafa mikla reynslu af sálfræðilegri meðferð fullorðinna við ýmiss konar vanda og sinna einnig stuðningi og ráðgjöf eftir áföll eða vegna annars sem upp kemur í lífinu.

Við hverju er hægt að leita til okkar?

Sálfræðingar stofunnar vinna meðal annars með kvíða, þunglyndi og depurð, streitu og kulnun, lágt sjálfsmat, áföll, tilfinningavanda og samskiptavanda. Einnig er hægt að leita til okkar vegna erfiðleika sem tengjast starfi og starfsumhverfi.

Meðferðarnálgun

Sálfræðingar stofunnar nota gagnreyndar aðferðir, meðal annars hugræna atferlismeðferð (HAM), ACT (Acceptance and Commitment Therapy), núvitund og EMDR, mismunandi eftir sálfræðingum.

Að bóka viðtal

Til að bóka viðtal hjá sálfræðingum Lífs og sálar má hringja í síma 511 5508 eða senda okkur fyrirspurn hér á síðunni.

Neyðartilfelli

Sé vandinn alvarlegur hvetjum við fólk til að hafa samband við bráðamóttöku geðdeildar í síma 543 4050 eða hringja í 112. Einnig má benda á Píetasímann (552 2218) og Hjálparsíma Rauða krossins (1717), sem eru opnir allan sólarhringinn.

Algengar spurningar

Hvernig bóka ég tíma hjá sálfræðingi?

Hringdu í síma 511 5508 eða sendu okkur fyrirspurn hér á síðunni.

Hvert leita ég ef vandinn er bráður?

Hafðu samband við bráðamóttöku geðdeildar í síma 543 4050 eða hringdu í 112. Píetasíminn (552 2218) og Hjálparsími Rauða krossins (1717) eru opnir allan sólarhringinn.