Vinnustofur 2027 með Ståle Einarsen
Í apríl 2027 heldur Líf og sál, í samstarfi við Ståle Einarsen, þrjár ólíkar vinnustofur fyrir fagfólk. Ståle er prófessor í vinnu- og skipulagssálfræði við félagssálfræðideild Háskólans í Bergen og sérfræðingur í EKKO-málum og faglegum úttektum á vinnustöðum.
Vinnustofa í faglegri úttekt, 12. til 14. apríl 2027 á Hótel Örk
Grunnnámskeið í faglegri úttekt þegar upp koma erfið starfsmannamál. Kennd er aðferð sem nefnist staðreyndarrannsókn (á norsku faktaundersøkelse). Vinnustofan er ætluð fagfólki sem starfar við úttektir eða í mannauðsmálum fyrirtækja og stofnana. Innifalin er kennsla, gisting í tvær nætur og fullt fæði. Námskeiðsgjald er 425.000 kr.
Hvað svo? Vinnustofa í eftirfylgd úttekta, 15. til 16. apríl 2027 á Hótel Nordica
Tveggja daga vinnustofa fyrir öll sem gegna hlutverki í tengslum við úttektir á kvörtunum á vinnustöðum. Fjallað er um hvernig bregðast skuli við ágreiningi í kjölfar mála, hvernig samskipti málsaðila komist aftur í eðlilegt horf og hvernig hagsmunir allra aðila eru tryggðir að úttekt lokinni. Námskeiðsgjald er 225.000 kr.
Masterclass í faglegri úttekt, 19. apríl 2027 á Hótel Nordica
Eins dags framhald og dýpkun á þriggja daga grunnnámskeiðinu, eingöngu opið þeim sem hafa lokið því. Áhersla á reynslumiðlun og aukna hagnýta þjálfun í viðtölum og framkvæmd staðreyndarrannsókna. Námskeiðsgjald er 120.000 kr.
Skráning
Skráning á allar vinnustofur er hafin og undanfarin ár hafa færri komist að en vildu. Sætafjöldi er takmarkaður. Skráðu þig með hnappnum „Skrá mig“ á síðu hverrar vinnustofu undir Viðburðir, eða sendu póst á lifogsal@lifogsal.is.
Algengar spurningar
Hvað er staðreyndarrannsókn?
Rannsóknaraðferð sem notuð er þegar upp koma kvartanir um einelti, áreitni, neikvæða stjórnunarhætti eða annað sem beinist að starfsumhverfinu. Hún kemur sér sérstaklega vel þegar orð stendur gegn orði og er í samræmi við vinnuverndar- og persónuverndarlög og helstu reglur um málsmeðferð, svo sem um hæfi og andmælarétt.
Get ég farið á masterclass án grunnnámskeiðsins?
Nei. Masterclass er eingöngu opinn þátttakendum sem hafa þegar lokið grunnnámskeiðinu í faglegri úttekt.
