
- Dagsetning
- 15. apríl 2027
- Tími
- Kl. 8:30, tveir dagar (15.–16. apríl)
- Staður
- Hótel Nordica
- Námskeiðsgjald
- 225.000 kr.
Að framkvæma vandaðar úttektir með sanngjörnum og rökstuddum niðurstöðum er eitt, en að fylgja þeim eftir með árangursríkum hætti og viðeigandi aðgerðum er einnig nauðsynlegt til að málum ljúki á farsælan hátt.
Tveggja daga vinnustofa, haldin í samstarfi við Ståle Einarsen, fyrir öll sem gegna hlutverki í tengslum við úttektir á kvörtunum á vinnustöðum. Fjallað er um hvernig bregðast skuli við ágreiningi í kjölfar mála, hvernig samskipti milli málsaðila komist aftur í eðlilegt horf og hvernig hagsmunir vinnuveitanda og annarra aðila eru tryggðir að úttekt lokinni.
Námskeiðsgjald er 225.000 kr. Innifalin er öll kennsla, námsgögn og veitingar. Sætafjöldi er takmarkaður.
Helstu efnistök
- Eftirvinnsla sem lykilþáttur í málsmeðferð.
- Að ná aftur eðlilegu jafnvægi í starfsumhverfinu.
- Skref fyrir skref ferli fyrir einstaklinga, hópa og vinnustaðinn í heild.
- Jákvæðar og varanlegar breytingar á menningu og samskiptum.
- Hagsmunir og ábyrgð vinnuveitanda.
- Hagnýt aðferðafræði og verkfæri til eftirfylgni og úrbóta.
Fyrir hverja?
Vinnuveitendur, mannauðsfólk, starfsfólk í vinnuvernd, trúnaðarmenn og öryggistrúnaðarmenn, en einnig lögfræðinga, vinnusálfræðinga og aðra sem veita vinnuveitendum ráðgjöf í kjölfar úttekta.
Skráning
Skráðu þig með hnappnum „Skrá mig“ hér að ofan eða sendu póst á lifogsal@lifogsal.is.
