
- Dagsetning
- 12. apríl 2027
- Tími
- Kl. 8:30, þrír dagar (12.–14. apríl)
- Staður
- Hótel Örk, Hveragerði
- Námskeiðsgjald
- 425.000 kr.
Grunnnámskeið í faglegri úttekt þegar upp koma erfið starfsmannamál, haldið í samstarfi við Ståle Einarsen, prófessor í vinnu- og skipulagssálfræði við félagssálfræðideild Háskólans í Bergen. Kennd er aðferð sem nefnist staðreyndarrannsókn (á norsku faktaundersøkelse).
Vinnustofan er fjögurra daga námskeið sem þjappað er í þrjá daga, svo reikna má með tveimur löngum dögum. Áætlað er að henni ljúki um kl. 15:30 þann 14. apríl. Þar sem dagskráin er þétt fer Ståle fram á að fólk gisti á hótelinu. Innifalin er kennsla, gisting í tvær nætur og fullt fæði. Námskeiðsgjald er 425.000 kr., sama gjald og árið 2025.
Helstu efnistök
- Lög og reglur sem liggja til grundvallar siðferðislegri og sanngjarnri meðferð eineltis- og áreitnimála eða annarra brota á vinnustöðum.
- Hvernig greina á atvik og rekja grun um neikvæða hegðun.
- Hvernig skapa má örugga umgjörð til að mæta neikvæðri hegðun á vinnustað.
- Hvernig taka má ákvarðanir sem skýra ábyrgð og þörf á eftirfylgni.
- Fræðilegur og hagnýtur grunnur á hugtökunum einelti og áreitni.
Um staðreyndarrannsóknir
Staðreyndarrannsókn er rannsóknaraðferð sem notuð er þegar upp koma kvartanir um einelti, áreitni, neikvæða stjórnunarhætti eða aðrar kvartanir sem beinast að starfsumhverfinu. Aðferðin kemur sér sérstaklega vel þegar orð stendur gegn orði. Vel framkvæmd staðreyndarrannsókn tryggir vandaða, hraða og sanngjarna meðferð mála og er í samræmi við vinnuverndar- og persónuverndarlög og helstu reglur um málsmeðferð, svo sem um hæfi og andmælarétt.
Aðferðin var upphaflega þróuð á vegum norska vinnueftirlitsins í samstarfi við Ståle og aðila norska vinnumarkaðarins í verkefninu „Vinna án eineltis“ á árunum 2005 til 2007.
Fyrir hverja?
Starfsfólk mannauðsdeilda, stjórnendur, sálfræðinga, lögfræðinga og starfsfólk í stjórnsýslu.
Skráning
Skráning er hafin og undanfarin ár hafa færri komist að en vildu. Skráðu þig með hnappnum „Skrá mig“ hér að ofan eða sendu póst á lifogsal@lifogsal.is.
Umsagnir þátttakenda
„Námskeiðið var virkilega gagnlegt fyrir okkur hjá Reykjavíkurborg og hefur nýst okkur við uppfærslu á okkar stefnu og verklagi. … Mæli algjörlega með þessu námskeiði fyrir mannauðsfólk.“
Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu mannauðs- og starfsumhverfissviðs hjá Reykjavíkurborg
„… Aðferðarfræðin á námskeiðinu hefur reynst okkur vel í starfi og hefur hjálpað okkur við skilgreiningar á hugtökum, koma orði á óæskilega hegðun og hefur verið notuð í vinnu með stjórnendum.“
Ragnhildur Ísaksdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs hjá Háskóla Íslands
„… Við hjá Isavia höfum þegar nýtt okkur það sem fram kom á námskeiðinu til að styrkja okkar vinnubrögð og ferla, með það að markmiði að skapa heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk okkar.“
Helga María Finnbjörnsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá Isavia
„… Í mínu starfi sem mannauðsráðgjafi tek ég reglulega á móti tilkynningum um erfið starfsmannamál og hef þegar nýtt mér þá aðferðafræði sem kynnt var á námskeiðinu. Hún hefur reynst mér vel í að nálgast slík mál af fagmennsku og með auknu öryggi.“
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
„… Námskeiðið var bæði fræðandi og skemmtilegt. … Ég get því með sanni sagt að námskeiðið hafi verið mér gagnlegt í störfum mínum bæði við skoðun EKKO-mála og í öðrum samskiptamálum.“
Díana Ósk Óskarsdóttir, faglegur handleiðari og prestur hjá stuðningsteymi starfsfólks Landspítala
